... æi þessir dagar eru já oft til mæðu því þetta er þétt setnasti dagurinn minn í vikunni. Kennsla frá 08.00-13.00 og þá hálftíma pása til að nærast og svo kennslutörn frá 13.00-18.30 og þá er nú ekki mikil orka eftir. Maður lufsast heim á leið og borðar og svo yfirleitt sófamatur þangað til maður drattast í svefninn.
EN ÞETTA VAR ÚTÚRDÚR ....
Ég setti inn smá vefdagbók og myndir á bumbusíðuna og að vissu leyti nokkrum áfanga náð því meðgangan er akkúrat hálfnuð í dag :) og ákvað bumbukrílið að halda uppá það um helgina með því að láta finna fyrir sér í fyrsta skiptið :) Ekkert smá notaleg tilfinning það. Hallbjörg kom með nokkrar uppástungur að nöfnum um helgina, stelpunöfn Margrét og Emelía og strákanöfn Jóhann eða Almar - Jóhann Almar fannst henni líka afbragðshugmynd :-D Spurning hvort Peta eða Reynir hafi hitt hana á förnum vegi og mútað henni eitthvað :)
Fékk eitthvað mesta eirðarleysiskast EVER á laugardagskvöldið en Vigga og Peta björguðu því með heimsókn og sunnudagurinn svo tekinn í rólegheitum .!.
Sófamatur er góður...
SvaraEyðaYndisleg með hreyfingarnar, bara spennandi sætust :-) Annars er bara ljúft að eiga gott sófakvöld stundum!!!
SvaraEyða@Arnar - eheheheh sófamaturinn er ÉG, spurning hvað Jonni heldur um þetta ;)
SvaraEyða@Helga - ó já, gerir þetta allt saman miklu raunverulegra .. og sófakvöldin eru algjört MUST þegar maður er lúin ;)
Yndislegt að fá að fylgjast með krílinu dafna á heimasíðunni og gaman að heyra hvað allt gengur vel.
SvaraEyðaEn sófamatur er svalur - var síðast sófamatur í gærkvöldi og leið bara svakalega vel með það!
Jæja, maður verður nú að kommmmmenta á þetta, maður er bara farin að koma fyrir í hverri færslu :-)
SvaraEyðaJóhann Almar er auðvitað flottasta nafnið og mjög skondið að hún skuli segja þetta, ekki hef ég hitt hana í marga mánuði. En annars var frábært að koma loksins á gamla heimilið sitt. Kveðja úr borg óttans hehe
@Gréta - gaman að fólk vill fylgjast með og tala nú ekki um hvað það er gaman að fá svona pepp öðru hvoru :)
SvaraEyða@Peta - Segir mér bara að þú hafir ekkert hitt Hallbjörgu ;) en já fyndið að þú hafir ekkert komið áður, fannst eins og þú hefðir komið í Saumó til mín, en þú ferð nú að koma oftar þegar þú flytur ;)