Get Your Own! | View Slideshow

Hugrún & Nonni

þriðjudagur, apríl 24, 2007

BREYTINGAR ;)


Ég held það sé alveg óhætt að segja að það verða mjög miklar breytingar hjá okkur fjölskyldunni í næsta mánuði :) Meira um það síðar!!
Veðurguðirnir eru í liði með okkur þessa dagana og það er ótrúlegt hvað þetta blessaða veður hefur áhrif á allt og alla. Mér skilst að sumarið eigi að vera gott og ég vona svo innilega að það verði raunin því ég hef allan heimsins tíma til að dingla mér í sumar. Jonninn minn er líka að fara í fyrsta skipti í ,,alvöru" sumarfrí - þá á ég við langt og gott frí í nokkrar vikur.
Fékk frábæra spurningu í síðustu viku. Ein lítil dama í 1. bekk vissi að ég hafði verið í útlöndum en hún hafði hins vegar ekki tekið eftir að ég er ófrísk!! Henni varð allt í einu litið á bumbuna og segir "HEY - ertu með barn í maganum? Fékkstu það í útlöndum?" :)
Kannski ég fái þá tvíbura af því að ég er nú á leið aftur til London á föstudaginn!!!! ;)

5 Comments:

  • tad er alveg uppahaldid mitt tegar folk viljandi gerir annad folk forvitid...
    gaman ad sja tig um daginn... hafid tad gott tangad til i juli :)

    By Anonymous Nafnlaus, at 3:30 e.h.  

  • @Svanhildur - múahahah ég veit allavega fátt jafn pirrandi ;) en annars er ekkert mál að segja þér hvað stendur til, bara ekki í gegnum bloggið sem er opið alheiminum því það á eftir að ganga frá lausum endum. Fyrr þorir maður ekki að útvarpa endanlega :)

    Rosa gaman að fá þig aðeins heim, en eigum við bara ekket að hafa það gott eftir júlí eða ;)

    By Blogger Hugrún Sif, at 3:48 e.h.  

  • úú ég veit ég veit hí hí þetta verður spennandi!!!

    By Anonymous Nafnlaus, at 12:13 f.h.  

  • @Jenný - hehe :) Ég er allavega að verða ansi spennt því það er svo stutt eitthvað í þetta og þetta er allt að gerast svo hratt.

    By Blogger Hugrún Sif, at 8:59 f.h.  

  • úff ég er ekkert smá forvitin!!!

    By Anonymous Nafnlaus, at 9:36 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home