Get Your Own! | View Slideshow

Hugrún & Nonni

laugardagur, apríl 21, 2007

Gæsun og fleira

Ný komin heim úr gæsun á Ingu Sóleyju, múahahaha :) Við saumaklúbbssystur létum okkar ekki eftir liggja og engin miskunn þótt hún væri gengin 35 vikur!! Jú ok smá, skal viðurkenna það. Tókum rúnt með hana um Blönduós og gerðum hana að fífli í Kaninkubúning og svo var haldið í Vatnsdalinn í bústað þar sem við grilluðum, flestar tóku pott og enn færri tóku snúning á dansgólfinu. Annars ríkjandi samkomulag um að það sem fram fór í bústað verði bara þar ;)

Annars er maður bara að safna orku fyrir næstu Londonferð. Ég er varla að trúa því hvað ég er búin að vera þreytt eftir ferðina, ég verð rétt að jafna mig þegar maður tætir af stað aftur. Reyndar aðeins öðruvísi í þetta skiptið því við verðum miklu meira tvö útaf fyrir okkur og maður þarf þá ekkert að hafa samviskubit gagnvart öðrum að biðja um hvíldarstopp á 5 mín. fresti. Jonni verður að spila eitt kvöld og það verður á hótelinu sem við gistum á þannig að ég get með góðri samvisku laumað mér í háttinn þegar þreytan kallar.

Ég er rosa mikið að pæla að feta í fótspor frænku minnar og segja skilið við blogspot!! Líst svo helvíti vel á síðunna hennar eftir að hún gerði breytingar og þá fer maður kannski að nenna að henda aftur inn myndum.

Megið alveg taka ykkur á í að skilja eftir ykkur spor ;) Voða lonely færslur eitthvað undanfarið :/
HUGRÚN SIF

5 Comments:

  • Takk fyrir frábært kvöld í gær.

    By Anonymous Nafnlaus, at 7:45 e.h.  

  • Takk fyrir síðast :-) þetta var bara frábært í alla staði hjá okkur. Tók reyndar vitlausa sæng með mér heim en það leystist að lokum :-)

    By Anonymous Nafnlaus, at 10:19 f.h.  

  • veldi á ykkur ;)
    Allavega hlakkar mig bilað mikið til að dvelja þarna í smá tíma ;)

    By Anonymous Nafnlaus, at 10:42 e.h.  

  • Hvaða ógurlega flakk er þetta á ykkur, Vantar Jonna ekki ótrúlega góðan ljósamann fyrir túrinn??

    By Anonymous Nafnlaus, at 7:34 e.h.  

  • @Greta - takk sömuleiðis :)

    @Helga - sömuleiðis takk, þetta var æði gaman. Var ekki Hrefna með vitlausa sæng líka?

    @Thelma - jæja segðu ;)ÉG á alveg eftir að fá details um þessa dvöl þína þarna!!

    @Bobbý - úff, það er góð spurning. Heyrðu það væri það ;) Þeir eiga allavega nóga peninga þarna hjá þessu Sparisjóðsbatteríi hefði maður haldið. Eru ekki allir bankar svo ríkir svo ég held að þær ættu nú að splæsa í þig líka :)

    By Blogger Hugrún Sif, at 9:48 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home