Get Your Own! | View Slideshow

Hugrún & Nonni

mánudagur, maí 30, 2005

Topp 10 - hrakfallasögur utan landsteinanna!!

Nú er farið að styttast í að maður haldi af stað í vikuferð til Noregs, sem fararstjóri. Með mér í för verða Greta Björg og Elva Björk!! Mér skilst að Elva sé alveg agalega utan við sig og það er víst hægt að segja það sama um mig. Hef heyrt að það séu uppi einhver áhyggjurómur um að Greta komi ein til baka!! .... Nei - maður hefur nú bjargað sér út úr ýmsu!! En svona til gamans ákvað ég að taka saman nokkrar nýlegar hrakfallasögur af mér.

1. Þegar ég læsti flugmiðann, vegabréfið og peningana inni í herberginu sem ég bjó í DK og var búin að skila lyklinum inn um bréfalúgu á skrifstofunni sem var lokuð. Þar sem að ég var nánast komin uppá flugvöll þegar ég uppgötvaði þetta var ekki annað í boði en að keyra í tveimur hjólum til baka og brjótast inn á skrifstofuna svo ég kæmist úr landi. Þetta var 22.des og skrifstofan átti ekki að opna aftur fyrr en eftir jól.

2. Þegar ég gleymdi handtöskunni minni með gemsanum og peningaveskinu inní flugvél í Kaupmannahöfn og fattaði það þegar ég var komin út úr flugvallarbyggingunni, já peninga og símalaus!!

3. Þegar ég las í flugvélinni á leiðinni út til Danmerkur að það væri búið að leysa kennaraverkfallið og ég átti að mæta til vinnu morguninn eftir. Skrifstofukonurnar hjá flugfélaginu voru yfir sig hneykslaðar á mömmu þegar hún hringdi og bað um fyrsta flug heim fyrir dóttur sína ,,Já, en hún er nú bara í loftinu á leiðinni út” sagði aumingja konan sem var ekki að fatta þessa móðursýki.

4. Þegar ég uppgötvaði á flugvellinum í Kaupmannahöfn að ég átti bókað flug heim vikuna áður, sumsé átti bókaða heimferðina áður en ég fór frá Íslandi... þannig að ég mætti viku of seint í heimferðina.

5. Þegar ég var á leið uppá Kastrup með lest og heyrði allt í einu í hátalarakerfinu að lestin væri á leið til Stokkhólms (Svíþjóðar).

6. Þegar ég uppgötvaði á leiðinni uppá flugvöll að vetrartíminn hafði komið á um nóttina (klukkunni flýtt um einn tíma) sem kostaði mig næstum að ég missti af fluginu.

7. Þegar ég skildi eftir eða henti rafrænu staðfestingunni minni á flugi (í rauninni flugmiðanum) þannig að ég hafði ekki hugmynd um klukkan hvað ég átti flug heim og mamma mátti gjöra svo vel að hringja fyrir mig (ekki tímdi ég að hringja frá útlöndum) og bíða í hátt í klukkutíma í símanum til að fá þetta mál á hreint.

8. Þegar ég var að flytja heim frá Danmörku, rétt fyrir jól, og að sjálfsögðu allir á leið heim til Íslands. Að sjálfsögðu var búið að tvíbóka í sætið mitt!!

9. Þegar ég var í Finnlandi og að bíða eftir ferðatöskunni minni. Sé ég þá hvar ferðataskan er á færibandinu að sleppa frá mér og ég sýndi einhver viðbrögð þannig að karlinn við hliðiná mér ætlaði að vera svo góður að kippa henni af. Það tókst ekki betur en svo að taskan gal opnaðist og allt í einu voru nærbuxur af mér, brjóstahaldari og sitthvað fleira sem sem snerust á fullu blasti á færibandinu. VANDRÆÐALEGT!!

10. Þegar ég og vinkona mín sátum í lest og vorum að tala um konu sem sat á móti okkur. Sumt hefðum við betur látið ósagt!! Eftir dálitla stund leit konan á okkur og sagði Á ÍSLENSKU ,,ég er að fara til Asíu”

6 Comments:

  • Sem betur fer er maður nú farin að SJÓAST.......pollrólegur sama hvað gengur Á-á Kveðja Mamma

    By Anonymous Nafnlaus, at 2:24 e.h.  

  • OK... eftir þennan bráðskemmtilega lestur er ég helst komin á þá skoðun að þú ættir bara að halda þig við að vera heima á klakanum :)

    By Anonymous Nafnlaus, at 2:38 e.h.  

  • Bwahaha :) Snilldar sögur frá útlandaferðum þínu!!! Þú ert svo mikill gullmoli mín kæra!!!

    By Anonymous Nafnlaus, at 3:39 e.h.  

  • Þú ert alveg ótrúleg og skemmmtilega óheppin. Vonandi er hægt að segja í þínu tilfelli "fall er fararheill" þannig að Noregsferðin verði ánægjuleg í alla staði og þið stöllurnar komið heim sama dag, ánægðar og hamingjusamar.
    Kveðja Ásta :-)

    By Anonymous Nafnlaus, at 4:59 e.h.  

  • já ég ætti nú að geta bætt við þetta ég var nú nánast búin að missa af fluginu mínu frá London og í öllum æðibunuganginum í mér gleymdi ég töskunni minni í gegnumlýsigræjunni.
    Þegar ég var skiptinemi held ég að ég hafi fengið 2 eða 3 kreditkort send til mín út.
    Svo á leiðinni heim týndi ég veskinu mínu á flugvellinum :(
    Held að ég hafi líka gleymt því í gegnumlýsidótinu og jú mikið rétt næstum búin að missa af vélinni en það var nú ekki mér að kenna.
    Svo var ég nú í skólanum í dag og rakst á rykfallna inniskó og kú jú þeir voru merktir mér, sennilega búnir að vera þarna uppi í hillu í 5 ár :)
    En það var nú langt síðan ég lærði að tveir mínusar gera einn plús þannig ég hef ekki nokkrar áhyggjur af noregsferð okkar ;)

    By Anonymous Nafnlaus, at 12:06 f.h.  

  • Múahaha ... þetta verður skemmtiferð í lagi :) Hlakka mikið til!!

    By Blogger Hugrún Sif, at 11:02 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home