Get Your Own! | View Slideshow

Hugrún & Nonni

þriðjudagur, ágúst 16, 2005

Gaman af þessu.....

Nú er orðinn svolítill tími síðan kallinn ritaði nokkur orð .... Margt hefur drifið á daga manns undanfarið t.d útlönd, danskir dagar í hólminum sem nota bene var mjög gaman og virtist vera mjög vel skipulögð hátíð .

Ég og spússa mín ásamt Jóni og Þordísi fórum sem hefur áður komið fram á danska daga í Stykkishólmi um síðustu helgi. Þetta var rosa stuð og við fjórmenningarnir skemmtu okkur konunglega. Síðan fengum við fullt af góðum hugmyndum fyrir okkar ágætu hátið Mat og menningu og ætlumst til að við verðum í skipulagsnefnd að ári :) Þetta var gömul verslunarmannahelga stemmning kúlutjald og einnota grill:)

Nú er skólinn að hefjast aftur eftir sumarfrí og það verður gaman að takast á við þessar elskur í vetur . Manni sýnist að allir séu nokkuð vel stemmdir fyrir veturinn.

annars bara allt gott að frétta af norðurlandinu og við bröggust vel hér á Blönduósi.

Virðingarfyllst
Heiðar Logi

1 Comments:

  • Þið þurfið endilega að vera dugleg við að draga gamla settið af skúlabrautinni með ykkur í svona ferðalög....illa gaman að fá að eyða 2 dögum með drengnum og spilla honum aðeins!

    By Anonymous Nafnlaus, at 7:30 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home