Get Your Own! | View Slideshow

Hugrún & Nonni

fimmtudagur, nóvember 24, 2005

Ég á ekki orð ....

Mér var tjáð fyrir ekki svo löngu síðan að hann William Hung hefði fyrirfarið sér og ég var nú alveg miður mín yfir þessum kaldrifjaða heimi að hafa gert svona mikið grín af honum. Ég var nú ekki alveg að trúa þessu samt og fór á stúfana á netið til að fá þetta staðfest og fann þá ÞESSA grein sem staðfesti að kappinn væri látinn.

EN HVAÐ!!!

Sé ég svo ekki að hann er ekki dáinn fyrir fimmaura því félaginn er bara á Íslandi "sprellalæf" og ég er bara alveg hlessa á þessu öllu saman og hætt að botna upp né niður í þessu!! .. og efast um að ég muni trúa því hreinlega þegar mér verður tilkynnt um dauða einhvers.

3 Comments:

  • Aldrei að trúa neinu, þá meina ég neinu sem þú lest á netinu.

    By Anonymous Nafnlaus, at 5:13 e.h.  

  • Jerimias þetta er soldið CRAZY!!! Hann er allavega sprelllifandi hérna að spangólera sig í Smáralindinni ;)

    By Anonymous Nafnlaus, at 7:43 e.h.  

  • Þetta er samsæri!!!!!
    Hann er örugglega steindauður og þetta er einhver eftirherma sem ætlar sér að krækja í viðskiptavilldina og kvenhyllina sem William var búinn að skapa sér;)

    By Anonymous Nafnlaus, at 12:16 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home