Get Your Own! | View Slideshow

Hugrún & Nonni

mánudagur, nóvember 07, 2005

Já þessi helv.... tippleikur : )

Eins og fram hefur komið átti konan mín góða helgi í tippinu og ég vil óska henni til hamingju með þessa fúlgu fjár sem í hennar hendur fóru.. >: ) Mér gengur hins vegar ekki eins vel í þessum leik en ég er búinn að gera upp hug minn og ég ætla að taka þetta á endasprettinum .. Það er ekki búinn að vera "friður" á heimilinu síðan um helgina því ég fékk færri rétta en Hugrún mín.. : ( hehe svona er þetta bara.

En já hún Sædís Ósk Heiðarsdóttir kom til okkar um helgina ásamt "litlu" systur minni . það var mjög gaman að fá þær. Það er alveg ótrúlegt hvaða pælingar veltast um í litlum 7 ára kolli og hvers konar spurningar og svör maður fær en það er bara gaman af því.. Ég er nú ekki vanur að láta kjafta mig á gat en sú stutta getur það :) Síðan er þetta litla dýr farið að siða pabba sinn til og hún talar stundum við mig eins og ég sé krakkinn.. hehe en hún er yndisleg.

Systir mín er 15 ára og er að ljúka grunnskóla. Hún er 10 árum yngri og ég og það er alveg ótrúlegt að hún sé orðin svona gömul og hún er farin að pæla í strákum dísus... t.d um helgina þá komu 2 ónefdir drengir frá Blönduósi að spyrja eftir henni "litlu" systur minni . dísus :) en þetta eldist víst eins og maður sjálfur. En það er samt ótrúlegt hvað ég helst alltaf fallegur ;) Gaman af þessu ..

Takk fyrir mig og hafið það gott ..

6 Comments:

  • Ég var einmitt að spá í hvaða dama þetta væri þarna með ykkur. Litla systir já. Hún var nú ekki voða mikið lítil að sjá. Það eldast víst allir ekki bara við.

    By Anonymous Nafnlaus, at 1:41 e.h.  

  • Heiðar minn það gengur bara betur næst í tippinu hjá þér;)..ég held að þú ættir ekki roð í mig;).hehehhe...Heyrðu já ég trúi því að það hafi verið gaman að fá litlu stelpuna þína til þín og já hún er uppfull af spurningum sem maður spáir sjaldan í;)...en ætti kannski að gera það!...ef þér finnst Sibba litla systir þín orðin stór að þá er ég í sjokki yfir því að mín litla systir er að útskrifast úr Verzló!...stúdent..hmmm...

    By Anonymous Nafnlaus, at 3:07 e.h.  

  • Hvað segirðu ,,,, var þetta systir þín,, humm,,, ég hélt að þetta væri dóttir þín ;-)

    By Anonymous Nafnlaus, at 11:21 e.h.  

  • @ Höski..
    HEHEHE bara fyndinn :) og þa dóttir mín afabarn ?? :)

    By Anonymous Nafnlaus, at 8:20 f.h.  

  • Já, akkúrat þannig he he,, nei, nei, þú leynir á þér ;-)

    By Anonymous Nafnlaus, at 6:49 e.h.  

  • heisi minn þótt ég sé að stækka þá verð ég alltaf litla fallega og frábæra systir þín.. hehe ;) bíddu bara þangað til ég fæ bílpróf.. það eru nú bara 1 ár og 10 mán í það.. mohoho :)
    kv.sigurbjörg :)

    By Anonymous Nafnlaus, at 7:32 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home