Get Your Own! | View Slideshow

Hugrún & Nonni

þriðjudagur, janúar 31, 2006

Myndir

Hafði það af að henda inn myndum af þorrablóti!!


ER annars byrjuð að efna orðin um vanrækta vini & ættingja :) sjá síðustu færslu. Fór í sveitina til ömmu & afa í gær en smá pæling. Þegar ég fer þangað fylgja því alltaf einhverjar kvaðir fyrir hana elsku ömmu mína :/ Fer varla öðruvísi en með einhverja flík meðferðis sem þarf að skipta um lás á, stoppa í eða sauma!! VEI skemmtilegt að fá mig í heimsókn, já eða ekki. En það er sko lúxus að eiga svona súperömmu sem kann allt. Ég ætla ekki einu sinni að láta mig dreyma um að komast með tærnar þar sem hún hefur hælana í húsmóðurstörfunum.

eeennn vúhú Ísland. Snilld að taka Rússana... en þessir blessuðu handboltaleikir vekja samt alltaf upp slæma minningu 27-1. Man einhver? ;)

16 Comments:

  • Skemmtileg heit með Rússana er alveg sammála þér :)
    eeeen þegar ég sé lið tapa svoooona stórt verður mér hugsað aftur til baka ... ísk, fótboltaárin góðu þegar við töpuðum fyrir Þór/Ka díí 14-1 minnir mig FOKK...!!!
    En... ljúft að eiga yndislega ömmu sem gerir allt fyrir mann :) miss that..

    Jæja snúlls you´re on fire hérna í bloggheiminum.. :)

    By Anonymous Nafnlaus, at 6:58 e.h.  

  • hvernig gengur okkur erum vid komin upp ur ridlinum

    By Blogger **********, at 7:04 e.h.  

  • Snilldar leikur í dag, ég skemmti mér í botn:)
    Og flottar myndir af blótinu - ég má nú til með að skjóta því inn að þú lítur alveg svakalega vel út Hugrún:)

    By Anonymous Nafnlaus, at 8:57 e.h.  

  • Nei ég man ekki!!! 27-1????Hvaða leikur var það????Já nú eru þetta "STRÁKARNIR OKKAR" ;)
    Fínt Blót,þú varst helv... góð í skemmtiatriðunum;) Og NOTA BENE það heyrðist ekki á þér að það væri til stress í þér;)

    By Anonymous Nafnlaus, at 10:14 e.h.  

  • @Thelma - Shit ég var búin að gleyma þeim fræga leik, reyndar ekkert sem vert er að leggja á minnið :-D shit happends!! En já on fire, hehe, er að reyna að vera smá ofvirk þessa dagana.

    @Erla - hey þú. ER alltaf að bíða eftir fréttum af Spáni :) En já við erum að spilla í milliriðlum núna og vorum að vinna okkar fyrsta og eina spilaða leikinn þar!! Hlakka til að heyra hvernig gengur hjá þér :)

    @Gréta Jak - Maður fer hjá sér við lesninguna bara ;) TAKK TAKK!! og go ISLAND

    @Nonni - Hjúkk, sjáum hvort einhver fatti þessar tölur!! og já hehe nú eru allir rosalega jákvæðir og glaðir en það er fljótt að breytast ...
    .. og takk fyrir hrósið og **hóst hóst** var skringilega rauðflekkótt - hafði örugglega ekkert með stress að gera. HUMM :)

    By Anonymous Nafnlaus, at 8:15 f.h.  

  • Flott hjá þér að vera búin að skella inn nýjum myndum....lofar enn betri síðu.
    En já ég kannast við þessar tölur Ice-cup....segi ekki meir!! Líklega einn af fáum vetrum sem stelpur spiluðu handbolta á Dósinni :-) Og auðvitað vorum við þátttakendur í þessu glæsta tapi...

    By Anonymous Nafnlaus, at 8:28 f.h.  

  • @Helga - Ætla að reyna að vera dugleg að setja inn myndir, svo þú getur átt von á því að vera ofsótt af kamerunni minni ;) Suss - ég vissi að einhver kannaðist við þessa markatölu :)

    By Anonymous Nafnlaus, at 12:19 e.h.  

  • Já *hóst hóst* var orðin skrítin á litin ... en það bitnaði ekki á frammistöðunni :)

    By Anonymous Nafnlaus, at 3:38 e.h.  

  • Þú varst að spyrja hvenær keppnin er á Hvammstanga. Hún er 11. mars. Um að gera að láta sjá sig og sjá aðra. Svo maður minnist nú að hlusta líka á keppendur syngja. Þetta cverður spennandi keppni get ég sagt þér :)
    Palli.

    By Blogger pallilitli, at 11:45 e.h.  

  • HAHAHA..eitthvað kannast ég við þessar tölur, minnir meira að segja að ég hafi skorað þetta eina mark!!!...þegar við vorum á Ice cup í Hafnarfirði, og gleymi því ekki heldur þegar við vorum að keppa við Valsstúlkur og leiknum var frestað út af leik sem við vorum að horfa á í sjónvarpinu Valur-KA

    By Anonymous Nafnlaus, at 12:13 f.h.  

  • @Solla - já þetta var frekar fáránlegt :) en við sluppum nú lifandi frá þessu!!

    @Soffía - þakka :)kannski breyst eitthvað fjölskyldan síðan þú fluttir frá klakanum?? :)

    @Palli - 11. mars - vista það í kollinum. Væri gaman að sjá sönglist Vestursýslubúa. Mér finnst þetta nefnilega mjög gott framtak!!!

    @Kristín - Eigi góður handboltaferill hjá okkur :) Þessar tölur stóðu eftir leik við FH og mér eru þær landsliðskonur og tvíburasystur Dagný og Drífa mjög minnisstæðar!! Ég held samt örugglega að Kidda hafi skorað þetta fræga mark :-D

    By Anonymous Nafnlaus, at 11:49 f.h.  

  • Infatuation casinos? fabric this latest [url=http://www.realcazinoz.com]casino[/url] commander and toady to online casino games like slots, blackjack, roulette, baccarat and more at www.realcazinoz.com .
    you can also stick up for our untrained [url=http://freecasinogames2010.webs.com]casino[/url] guard away from at http://freecasinogames2010.webs.com and be heir to in tangible incredibly misled !
    another reclusive [url=http://www.ttittancasino.com]casino spiele[/url] consort with is www.ttittancasino.com , in rally german gamblers, submit c be communicated via unstinting online casino bonus.

    By Anonymous Nafnlaus, at 12:32 e.h.  

  • You could easily be making money online in the underground world of [URL=http://www.www.blackhatmoneymaker.com]blackhat marketing[/URL], Don’t feel silly if you don't know what blackhat is. Blackhat marketing uses not-so-popular or not-so-known ways to produce an income online.

    By Anonymous Nafnlaus, at 1:26 f.h.  

  • You have the roll over options for extending the loan compensation for some active and Ciceronian Hail Mary with the agreeableness with the world-wide-web. , are some of the need to Greek any sort of accident aligned with the lender. [url=http://paydayloanscoolp.co.uk]uk payday loan[/url] Cash accelerate payday loans are repaid over there is no application of credit acid test.

    By Anonymous Nafnlaus, at 7:35 f.h.  

  • [url=http://www.23planet.com]casinos online[/url], also known as accepted casinos or Internet casinos, are online versions of red-letter ("confrere and mortar") casinos. Online casinos approve gamblers to feign and wager on casino games with the grant-money the Internet.
    Online casinos superficially future on the buyer establish odds and payback percentages that are comparable to land-based casinos. Some online casinos contend higher payback percentages in the consume of deficiency gismo games, and some flow payout tome audits on their websites. Assuming that the online casino is using an correctly programmed indefinitely innumerable generator, proffer games like blackjack be blessed an established congress edge. The payout slice as a replacement exchange for these games are established at knee-jerk the rules of the game.
    Multiform online casinos acceptance in non-performance or be actualized their software from companies like Microgaming, Realtime Gaming, Playtech, Wide-ranging Ploy Technology and CryptoLogic Inc.

    By Anonymous Nafnlaus, at 4:27 f.h.  

  • If you arе going for best cоntents like mе, just pay a vіѕit this ωeb sіte еverydaу aѕ it offers featurе
    contents, thanks

    Also visit my web-site - payday
    my webpage :: payday

    By Anonymous Nafnlaus, at 1:13 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home