Get Your Own! | View Slideshow

Hugrún & Nonni

fimmtudagur, mars 23, 2006

HIN MYNDAOÐA ...

HAH ... mér tókst þetta!!! :)



Ég er alveg að hata þetta helv%&'? veður!! Bráðum fara Skagstrendingar að þekkja mig undir nafninu "æi þarna stelpan sem er alltaf föst í snjóskafli" í staðin fyrir Hugrún því ég er alveg sérfræðingur í að aka beint inní ógöngur, ekki það að bíllinn minn sé einhver hetja í snjó. Ó nei það er sko fjarri lagi. Leið náttúrulega eins og fífli þegar ég festi mig í gær, í fyrsta lagi þegar hann Bjarni sem dró mig upp fyrir rúmu ári þurfti endilega að sjá mig þarna fasta og í öðru lagi þegar fólksbílar voru að taka netta beygju fram hjá og brunuðu bara í gegnum snjóinn ... Já þetta er ekkert grín skal ég segja ykkur!! En það vill til að hann Jonni hefur alveg einstaklega mikla þolinmæði gagnvart þessu og kemur alltaf um hæl að bjarga málunum.

Annars er þetta hinn leiðinlegasti dagur. Er að stelast í tölvuna svo að ég verði ekki klikk úr aðgerðarleysi því ég er gjörsamlega að drepast fyrir allan peninginn í hausnum.. Þetta skrambans mígreni er að gera mér lífið leitt og því er bara ekkert tekið fagnandi....

En svona í blálokin .. Varð náttúrulega að prófa þetta líka :)


6 Comments:

  • Þú ert allavega komin með góða reynslu í hvernig á að festa sig í snjóskafli! Kannski þú þurfir að fara á námskeið í ökutækni í snjó :-) Annars er þetta ekki gott með mígrenið greyið mitt!!
    En þetta myndadæmi er ótrúlega flott... Aríós

    By Anonymous Nafnlaus, at 2:00 e.h.  

  • Sko *tókst* Erum við snillingar eða hvað :)

    By Anonymous Nafnlaus, at 2:04 e.h.  

  • Geggjað flott myndashow:) Þú ert greinilega orðinn hinn mesti tölvusnillingur sé ég:)
    En leitt að heyra með snjóskafla og mígreni... Sem betur fer losnaði ég við mígrenið á menntaskólaárunum og get ekki sagt að ég sakni þess mikið.
    Farðu bara vel með þig.

    By Anonymous Nafnlaus, at 3:26 e.h.  

  • Hæhæ.. þetta er flott hjá þér.. en spurning kannski að hafa ekkert að gera og vera ofurþrjósk.. :o) en láttu þér batna..

    By Anonymous Nafnlaus, at 11:03 e.h.  

  • @Helga - já reynslu og rúmlega það :) en já .. er að braggast af mígreninu ... og alveg orðin brjáluð á að hanga inni. Aríós.

    @Thelma - þrjóskan alveg að meika það :) Reyndar hjálpaði mér að prófa picturetrail dæmið þá tókst þetta um leið því það vantaði bara aðeins aftan á html dæmið.

    @Gréta - heyrðu þetta hófst víst allt með þolinmæðinni :) vona að þú lendir ekki líka í að mígrenið banki aftur uppá dyrnar hjá þér. ÞETTA ER SVO LEIÐINLEGT!! En já sömuleiðis farðu vel með þig :)

    @Heiðar Logi - maður er svo svalur .. hehe og já ÞRJÓSK!! Þú þekkir það :) en takk annars fyrir hjálpina í því sem þurfti að redda í þessum veikindum mínum....

    By Anonymous Nafnlaus, at 9:57 f.h.  

  • Rosalega er þetta flott hjá þér :)
    Kv. Vigga

    By Anonymous Nafnlaus, at 11:53 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home