Get Your Own! | View Slideshow

Hugrún & Nonni

fimmtudagur, mars 02, 2006

Well ...

Lenti í smá hremmingum í gær, fyrsta sinn sem hjá mér springur dekk eða hvað sem á að segja þegar það kemur gat á dekkið. Þar sem ég þyki nú alveg einstaklega illa að mér í öllu sem snýr að bifreiðum mínum hringdi ég í báða Jónana mína og voru þeir jafn óþolandi. Trúði mér hvorugur og sögðu að ég væri ímyndunarveik og hvort ég væri nú ekki bara að ruglast á einhverjum umhverfishljóðum .. Lýsingin mín hljóðaði svona ,,ég heyri sko svona tiss... hljóð sem kemur frá steini sem er fastur í dekkinu og þegar ég hreyfi hann stoppar hljóðið"

EN OH .. ég er ekki SVONA ÍMYNDUNARVEIK STRÁKAR!! Stóð föst á mínu og fékk Jón Örn til að skipta um dekkið og svo Jón Ólaf til að líta á dekkið og VITI menn.. HAHHHHH!! Gat á dekkinu - !!!! Hafið það .. :)

EN held ég þurfi nú samt að fara að læra þetta ef ég skyldi nú lenda í þessu ein í óbyggðum og enginn Jón í símasambandi. Veit ekki hvernig eða hvort ég kæmist af án þeirra!!

Nú og áfram hélt ég að níðast á Jóni eða öllu heldur henni Þórdísi því ég var að baka marens og þyki nú ekki sú snjallasta í bakstrinum svo ég valdi seif leiðina. Húsmóðurina sem á blástursofn, kitchen aid og bakar bestu marenskökurnar í heimi. Fór í heimsókn til hennar með egg og fleira - sniðugt hah - betra að gera þetta undir eftirliti :) Tók áfangann marenskökubakstur 103 hjá henni Þórdísi og held ég klúðri þessu ekki hér eftir. Hver vill splæsa á mig kitchen aid?

EN JÆJA ..
Batnandi mönnum er best að lifa.

9 Comments:

  • Marens... umm njomm :) Jæja, þar sem þú ert búin með MAR103 verðuru að sanna þig skvíss :) Hef fulla trú á þér. Líka með að skipta um dekk... pís óf pæ..pís óf keik.. ;)
    Heyrðu auðvitað gildir annars alltaf ungmennaf.andinn.. ;) En það þýðir ekkert annað en að gera sitt besta og ekkert neðar en það fyrsta...
    Hef fulla trú á þér í þeim málefnum líka...

    By Anonymous Nafnlaus, at 3:49 e.h.  

  • Hugrún mín ef þú ert í vandræðum með að skipta um dekk......þá erum ég og Svava snillingar í þeim málum, fórum á kostum á götum Reykjavíkurborgar ekki fyrir alls löngu.......djöfull flottar á því......enda erum við að norðan ;)

    By Anonymous Nafnlaus, at 4:39 e.h.  

  • seif leiðin hvað varð um íslensku fasismann hjá þér

    By Blogger **********, at 6:08 e.h.  

  • Já það er sko eins gott að þjálfa sig í dekkjaskiptum.....kannski við ættum að taka eina góða upprifjunarkennslustund saman :-) Annars er ég viss um að við myndum bjarga okkur ef á reyndi!!
    Mér líst vel á marensbaksturinn, ætla einmitt að skella í eina fyrir saumó í næstu viku....en fyrir hvað varstu eiginlega að baka?? hehe smá forvitni eða ertu bara að vera svona húsmóðursleg að þú ert hætt að þurfa sérstakt tilefni?? Eins gott að ég verði þá boðin bráðlega í gott sunnudagskaffi til ykkar skötuhjúa :-)

    By Anonymous Nafnlaus, at 8:30 e.h.  

  • @Thelma - Það er aldeilis að þú hefur trú á mér!! KANN VEL VIÐ ÞIG, hehehe :)

    @Kristín Ingibjörg - Heyrðu eruð þið með þjónustu út á landi líka :) Það þurfti nefnilega líka að skipta um hitt framdekkið í gær. Held þið myndið mokgræða í borginni, ekki oft sem maður sér tvær skvísur við dekkjaskipti.

    @Erla - svona svona :) Hann er ennþá til staðar ..!!

    @Helga - VEIT EKKI MEÐ DEKKIÐ. En heyrðu, kökubasar er það hjá litlu hnátunni minni :)en annars myndi maður nú skella í eina ef það væri von á þér í kaffi til okkar :)

    By Anonymous Nafnlaus, at 10:36 f.h.  

  • Ohhh Kitchenaid er einmitt draumurinn minn líka:) Getum við ekki bara sett saman lista og keypt nokkrar með magnafslætti:) hehehe

    By Anonymous Nafnlaus, at 12:22 e.h.  

  • Ber er hver að baki nema sér Jón eigi ;)Og ekki er verra að hafa þá tvo!

    By Anonymous Nafnlaus, at 11:24 e.h.  

  • Ég fékk kitchen Aid í 25 ára afmælisgjöf. Jebb segi það satt. Það átti að gefa mér brauðvél en sem betur fer var fólk eitthvað ósammála um hvaða tegund að ég fékk inneign upp í brauðvél. Mamma var líka svo góð að gefa mér það sem upp á vantaði í afmælisgjöf. Þannig að brauðvélin varð að hrærivél og ég er sko ekki að sjá eftir því. Hvað ert þú annars að verða gömul væna??? Svo er líka alltaf hægt að gifta sig!!!!!

    By Anonymous Nafnlaus, at 5:02 e.h.  

  • @Nonni - ú je ..og mikið á ég gott að eiga ykkur báða að :*

    @Hrefna - vei vei þá veit ég hvað ég bið um í afmælisgjöf!! og svo má auðvitað gifta sig líka og þá hlýt ég að eignast allt .. hehe .. verst að það kostar önnur eins útlát :)

    By Anonymous Nafnlaus, at 6:39 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home