Get Your Own! | View Slideshow

Hugrún & Nonni

sunnudagur, mars 12, 2006

Þynnkudagur

Hún er heldur hrörleg heilsan í dag - fyrsti þynnkudagur í MJÖG langan tíma og svei mér þá það hefur ekkert breyst með það að það er alltaf jafn helvíti leiðinlegt. Skrítið.

Undanfari þessarar þynnku á sér rætur að rekja til konukvölds. Við konurnar kunnum sko heldur betur að hella í glösin og sturta í okkur þegar betri helmingarnir okkar sjá ekki til :) Annars var þetta kvöld haldið á hótelinu á Skagaströnd og þarna var gjörsamlega kjaftfullt af konum, eins og nafn kvöldsins gefur klárlega til kynna. Eftir skemmtilega dagskrá var hinu kyninu svo heimilt að mæta á svæðið en minn maður fékk ekki langan tíma í kvennabúrinu því fljótlega upp frá því að hann kom fannst mér veggir og gólf frekar hringsnúast svo að ég var dauðfegin að fá góðar undirtektir við þeirri bón að fara heim...

EN allavega ætla að hrósa Viggu fyrir frábært kvöld og greinilegt að hún lagði mjög mikla vinnu í að gera þetta kvöld sem skemmtilegast fyrir okkur sem þarna voru. Að sjálfsögðu voru nokkur móment fest á filmu og koma þær myndir inn um leið og ég kemst í PC. Mér semur ekkert sérstaklega vel við makkann hans Jonna og til að forðast ofsa og óþolinmæðisköst ætla ég ekkert að eyða meiri tíma í að reyna að gera þetta í makkanum.

Annars allt í lukkunnar velstandi, fór á skíði á föstudaginn og shit hvað það er alltaf jafn gaman. EN JÆJA ... þetta blessaða jæja. 10 réttir í tippinu!! Veit ekki enn hvort það er gott eða slæmt því ég veit ekkert hvernig hinum gekk, nema um einn sem fékk 13, sem skilaði honum smá summu í hús, helvítið á honum. Nei nei bara gott mál :)


Þangað til næst,
verið góð við hvert annað!!

5 Comments:

  • Var Ari með 13 rétta shitturinn titturinn.. :D góður

    By Anonymous Nafnlaus, at 8:26 f.h.  

  • @Heiðar Logi - þetta er maður að heyra ... Eins gott að fara að hætta þessu kæruleysi að renna ekki í gegn hjá sér.

    By Anonymous Nafnlaus, at 10:07 f.h.  

  • JáHá... 13 réttir en ekki slæmt að vera með 10 :) kveðjós Thelma...

    By Anonymous Nafnlaus, at 12:28 e.h.  

  • Úff þynnkudagur - það eru margir herrans mánuðir síðan hann hefur bankað upp á hjá mér og ég er ekkert á leiðinni að gefa honum tækifæri á að kíkja á mig í nánustu framtíð;) hehehe
    Engu að síður gaman að heyra að konukvöldið var skemmtilegt og að þú átt góðan mann sem kom þér heim áður en þú fórst að gera einhverja skandala:) hehehehe

    By Anonymous Nafnlaus, at 7:59 e.h.  

  • @Thelma - jah ég hefði allavega ekki slegið höndinni á móti því ..... 150 þúsund karl .. gæti eytt því á 3 mínútum!!!!!

    @Gréta - Suss .. þeir kíkja í heimsókn til þín áður en þú veist af .. nei nei segi nú bara svona ....
    En já ég á sko BESTA MANNINN í öllum heiminum :) honum hefur nú ekkert litist á að ég færi að gera mig að fífli á Skagaströnd ;)

    By Anonymous Nafnlaus, at 9:28 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home