Get Your Own! | View Slideshow

Hugrún & Nonni

þriðjudagur, maí 16, 2006

ANDA INN - ANDA ÚT

Hvað get ég sagt? Fundur hér og fundur þar. Redda þessu, redda hinu. Gera hitt og gera þetta. Muna eftir þessu og ekki gleyma öðru. Nú SKAL ég fara að minnka við mig.
I´M GOING NUT!!!!!

Já, já þetta líður hjá fyrir rest. Annars allt í gúddí bara, kíkti á Litlu hryllingsbúðina og hún Ardís mín var nú bara alveg brill, kom mér á óvart stelpan á leiklistarsviðinu. Þessi líka flotta leikkona :) Alveg búin að ákveða að fara aftur og taka karlinn með í það skiptið.... :) Reyndar sat eins og bjáni í blálokin og snökti þegar mesta dramað gekk yfir. Veit ekki hvað gengur að mér þessa dagana, tárast yfir öllum andsk. Ef það er ekki Hryllingsbúðin - HALLÓ - þá er það Lost og ef ekki Lost þá bara eitthvað annað. Eitthvað viðkvæmt stúlkuhjartað núna ....

Annars erum við Jón Ólafur enn við vorverkin og eyddum gærkvöldinu út á lóð að olíubera pallinn, flytja steina til og frá og sópa. Erum aðeins að missa okkur :) Svo eru miklar vangaveltur um hvað við ætlum að gera við "krókodílaskurðinn" okkar góða .. Held ég sé búin að láta telja mig á einhver tré sem ég man nú ekki einu sinni hvað heita - er nú ekki meiri garðyrkjufræðingur en það - kemur í ljós. Allar hugmyndir vel þegnar :)


Jæja .. er að verða of sein á skólanefndarfund!!
Aríós .....

4 Comments:

  • Æi kerlingin mín! Ljómandi gaman þegar maður hefur nóg að gera EN EKKI REYNA AÐ SEGJA MÉR AÐ ÞIÐ HAFIÐ VIRKILEGA GAMAN AF ÞESSUM VORVERKUM!!! Allavega ekki hann Jón frændi minn!! Ég skal aldrei trúa því;)

    By Anonymous Nafnlaus, at 6:44 e.h.  

  • Hugrún Sif said...
    @Nonni - ó jú, ég segi það og skrifa :) Dundum okkur eins og spenntir smákrakkar "getum við ekki gert eitthvað meira" :)

    @Anonymous - Hér skrifar fólk undir nafni eða sleppir því að kommenta!!

    By Blogger Hugrún Sif, at 12:39 e.h.  

  • Ú hvað ég hlakka til að kíkja í heimsókn í sumar og sjá garðinn :D Eins gott að þú verðir búin að brasa í honum þá ..hihi :D
    Kveðja úr Lúx ..Kristín

    By Anonymous Nafnlaus, at 7:51 e.h.  

  • @Kristín Lúx - Heyrðu ég er sko byrjuð að brasa þannig að það verður allavega eitthvað búið að gera ;) Fékk annars skemmtilega heimsókn í gær, Hrefnu, Hörpu og þrjá litla bræður :) Hefði nú verið snilld að hafa þig þarna líka!!

    By Anonymous Nafnlaus, at 10:43 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home