Get Your Own! | View Slideshow

Hugrún & Nonni

mánudagur, júlí 31, 2006

MÁNUDAGUR .!.

Þetta er nú aldeilis fínn dagur í dag. Veður ekkert til að hrópa húrra fyrir en mér bara gæti ekki verið meira sama þar sem ég er að vinna ... já og svo er ég líka búin að sofa alveg heilan helling.

ÉG vona að í garð sé gengið andvökutímabil sem fólst í því (nú tala ég í þátíð því ég ætla að vera svo bjartsýn) að ég í svona 2-3 vikur eiginlega vakti yfir mig því þótt ég væri alveg daaaauuuuðþreytt þá bara sofnaði ég ekkert og lá dag eftir dag eftir dag vakandi í svona 4-5 klst. og þegar það endurtekur sig margar nætur í röð þá kemst maður ansi nálægt því að verða geðveikur. G E Ð V E I K U R.

Ég veit ekki hvaða hollráð ég var ekki búin að reyna. Passaði mig aldeilis á að sofna ekki eftir vinnu, búin að lesa heil ósköp, hlusta á róandi tónlist, telja kindur sem ég reyndar get alls ekki því þær koma alltaf hlaupandi í hópum, slaka á einum vöðva í einu (ráð úr vinnunni) og nýjasta nýtt jóga. En eins og ég segi, ég held svei mér þá að ég sé komin yfir þetta helvíti ....

2 Comments:

  • Ertu búin að prófa svona augnpúða eins og ég keypti í boston, kannski ekki mjög töff en svínvirkar í sumarbirtunni á íslandi ;)

    By Anonymous Nafnlaus, at 3:56 e.h.  

  • @Anna Margret - Æi þú ert snillingur, ég á bara fyndna mynd af þér með þetta á hausnum, en svei mér þá það sem ég hefði átt að asnast til að kaupa svona, oft hugsað til þess :-D

    By Blogger Hugrún Sif, at 12:22 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home