Get Your Own! | View Slideshow

Hugrún & Nonni

laugardagur, september 23, 2006

Þingmennska

Góðan og blessaðan daginn ;)

Laugardagur til lukku í dag, ætli ég vinni í lottóinu í kvöld? Það væri nú óskandi að þessi áskrift fari að skila mér inn einhverri góðri summu því það er ansi margt sem ég gæti hugsað mér að gera við peningana ;)

Fór á þing í gær á Sauðárkrók .!. Sambland af fyrirlestrum, faglegri umræðu, mat og glensi og gríni. Farin að heiman kl.07.45 í gærmorgun og ekki komin aftur fyrr en kl.01 eftir miðnætti. Rosalega gaman og gagnlegt að bera saman bækur sínar með öðrum kennurum á Norðurlandi-vestra og ég ætla strax eftir helgi að byrja að nota nýju hugmyndirnar sem ég viðaði að mér. Niðurstaðan í tónmenntasmiðjunni varð reyndar sú að þær óskuðu eftir að ég héldi námskeið fyrir þær en það er bara spennandi ef af því verður.

Annars bara góð, fyrir utan að mig dreymir svo hryllilega mikið þessa dagana og oft marga drauma á nóttu, hver öðrum fáránlegri og ég er stundum bara alveg kolrugluð þegar ég vakna á morgnana og þarf oft góðan tíma til að sortera hvað sé raunveruleiki og hvað mig hafi verið að dreyma. Það er líka ótrúlega óþægilegt að dreyma svona mikið því maður er bara hálf dasaður í líkamanum á eftir. En þetta hlýtur nú að ganga yfir ....

Þvílíkur dugnaður greip um sig á heimilinu í vikunni. Tókum smá henda herferð því geymslan var orðin gjörsamlega stútfull og fórum í gegnum hvern kassann á fætur öðrum sem við höfum sett alls konar drassl. Þvílíka magnið sem fór í ruslið og margt ansi skondið, fyndið eða fróðlegt sem gat leynst í þessum kössum :-D Ótrúlegustu hlutir sem manni getur dottið í hug að geyma eða þeir hafa einfaldlega bara einhvern veginn slæðst með.

En jæja, þessi færsla er nú að verða álíka spennandi og 100 metra hlaups keppni skjaldbaka, gjörsamlega steindauður pistill og ekkert upp úr honum að hafa :)

Heyrumst,
Hugrún

2 Comments:

  • Jú, veistu að amk mér líður betur eftir að lesa þennan "steindauða pistil".... hvers vegna.... jú, ég á nefnilega við þetta sama vandamál að stríða þessa dagana, þe mig dreymir alls kyns vitleysu á hverri nóttu og vakna oft bara þreytt á morgnana útaf þessu!

    kv Lena

    By Anonymous Nafnlaus, at 8:16 f.h.  

  • Eftir þessa færslu dreymdi mig t.d. að ég væri lasin og var lögð inná sjúkrahús og þar var ég sprautuð í höfuðið af læknaritaranum og ég varð svo reið að ég stóð upp og stakk af sjúkrahúsinu ... þvílíka ruglið!!

    By Anonymous Nafnlaus, at 9:56 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home