Get Your Own! | View Slideshow

Hugrún & Nonni

föstudagur, september 29, 2006

TO FIND list!

Eftirfarandi hlutir eru týndir og ef einhverjir vita um ferðir þeirra væri sú vitneskja vel þegin:

- Leðurjakkinn minn
(man síðast eftir að hafa verið í honum fyrir Sunnan)
- Debet kortið mitt
(notaði það síðast á kennaraþinginu)
- Ullarpeysan mín
(ég man eftir að einhver sagði mér að hún væri heima hjá sér en ég bara man ekki hver það var)
- Þvottabalinn minn
( mér er bara lífsins ómögulegt að skilja hvernig ég gat týnt honum því ég hef nú ekkert lagt það í vana minn að vera að rúnta um með hann)

Svo má ég til með að benda á tvo nýja linka sem ég setti inn:
Innheimtulausnir (fyrirtæki systur hennar mömmu)
Viktoría Von (litla frænka hans Ragnars Svans og Bryndísar)

Status annars ágætur á þessum föstudegi. Fullt fullt að gera um helgina en það er bara eins og það er. Byrjum hana allavega hjúin á bjórkvöldi á verkstæðinu en ég ætla nú reyndar ekkert að fá mér í glas. Gott trikk ha, erum nefnilega að fara að spila eitthvað held ég og ef ég sé bara til þess að allir hinir séu nógu déskoti drukknir þá vinn ég örugglega öll spilin ;)

Góða helgi.

6 Comments:

  • HaHa.. held ég muni varla eftir þér en að hafa týnt debbaranum þínum ;) annan hvern dag, nei kannski ekki.. ;)

    By Anonymous Nafnlaus, at 10:00 f.h.  

  • Ekki gott að týna þvottabalann, hvernig ætlarðu nú að fara að því að þvo? Þú verður að láta kallinn þvo fyrir þig ;)hehe En ég er búin að senda þér nótur...loksins...sorrííí :/ Heyrumst Linda María

    By Anonymous Nafnlaus, at 5:10 e.h.  

  • @Thelma - heyrðu, heldurðu að karlinn hafi ekki fundið kortið :-D það var sko þar sem það á að vera geymt bara doldið bakvið í leyni :-/

    @Linda María - það vill nú til að hann er duglegur að þvo þessi elska. En hlakka til að fá þig í messuheimsókn, ekki málið þótt þær hafi ekki farið í póst fyrr, væri örugglega ekkert byrjuð að æfa þetta :-/

    By Blogger Hugrún Sif, at 7:17 e.h.  

  • Hæ pæ!
    stódst þig vel í dag.
    kv. vigga

    By Anonymous Nafnlaus, at 2:36 f.h.  

  • Sko þvottabalinn er hér í þvottahúsinu á Húnabraut 18..mér að kenna ,síðan þú þvoðir fyrir mig.Og leðurjakkin þinn hangir í fatahenginu í sama húsi,þú gleymdir honum hér einn daginn. Sko tveir hlutir fundnir.

    By Anonymous Nafnlaus, at 8:27 e.h.  

  • @Vigga - takk kærlega :-*

    @mamma - ha hérna hér. Já nú klingir bjöllunum með balann, jíha, og man nú ekkert eftir að hafa gleymt leddaranum en mér er sama svo lengi sem hann er fundinn, og svo er debetkortið fundið og þá er bara lopapeysan eftir :-Þ

    By Blogger Hugrún Sif, at 10:33 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home