Get Your Own! | View Slideshow

Hugrún & Nonni

laugardagur, desember 30, 2006

Jólin 2006

Kannski kominn tími á eins og eina færslu. Búin að hafa það ofsalega gott um jólin. Kærkomin hvíld og mikið sofið. Heilsan búin að vera þokkaleg síðan síðast. Þurftum reyndar eina skotferð á FSA á Akureyri 21. des og svo lögð inn á Þorláksmessu en æi allt er gott sem endar vel. Þetta er farið að venjast ótrúlega og einn dagur tekinn í einu .!. Fórum Suður á Landsspítalann í dag og þar kom allt rosalega vel út - okkur var báðum dáldið mikið létt :)

Aðfangadagur var yndislegur í alla staði. Jonna tókst vel með rjúpurnar og kvöldið svo rólegt og notalegt. Við erum hjartanlega sammála um að vera heima hér eftir því við upplifðum kvöldið miklu sterkara en áður og það skilur svo miklu meira eftir af því að við vorum að gera þetta sjálf og saman.

Jonni kom mér heldur betur á óvart .!. Gaf konunni sinni PÍANÓ í jólagjöf og búið að vera heilmikið leynimakk í kringum það :) Þegar við vorum búin að opna pakkana var ég send inní herbergi og hann og Hallbjörg röltu yfir til tengdó og til baka komu þau ásamt systrum Jonna með gripinn og píanóstól. Þurfti sko sex manns í þetta ;) Ég er alveg í skýjunum með þessa nýju græju og Hallbjörg tók skýrt fram að ég þyrfti sko að kyssa pabba sinn fyrir þetta :) Alveg frábært að eiga loksins almennilegt hljóðfæri hérna heima í staðin fyrir að þurfa alltaf út í kirkju eða tónlistarskóla til að æfa mig.

...... og já LÁNIÐ BARA LEIKUR VIÐ MIG, ahahahaha. Fyrst vann ég léttvínspottinn alls 10 flöskur og svo var ég að vinna kassa af bjór :) Sumir njóta meira góðs af því en aðrir þessa dagana.

En segjum þetta gott í kvöld.
Gleðileg jólin þótt seint sé og takk kærlega fyrir mig og mína, bæði jólakort og gjafir .!.

5 Comments:

  • Gleðilega hátíð og takk kærlega fyrir mig!!! Gott að allt er að ganga vel. ;) Vonandi sjáumst við sem fyrst! kossar og knús!!!

    By Blogger Linda Hlín, at 7:01 e.h.  

  • Ég er í skýjunum yfir jólagjöfinni frá Jonna!!! Vá!!! góð hugmynd... ég vona að Böddi lesi þetta aldrei og að ég fái að stela þessari hugmynd. Bara brill!!!. Leitt að heyra með sjúkrahúsferðina, ég veit nú ekki hvað er að, en ég vona að það sé ekkert alvarlegt!!! Ég setti inn eina mynd af Sunnu með snúllunni sinni inn á Barnalandsíðuna hennar Emilíu Bjartar minnar. Kannski þú hafir gaman af því að sjá hana:D Gangi þér vel í tónlistinni skvíz... þar áttu heima ;) kveðja Anna Dögg

    By Anonymous Nafnlaus, at 11:04 e.h.  

  • Gleðilegt nýtt ár ;)

    Leiðinlegt að lesa með sjúkrahúsferðina :/ En hafðu það rosalega gott á þessu ári ;-)

    Kv.
    Thelma

    By Anonymous Nafnlaus, at 2:58 e.h.  

  • Gleðilega hátíð Hugrún mín. Það varð ekkert úr þessum hittingi hjá okkur ;) við reynum bara næst.
    knús
    Halla

    By Anonymous Nafnlaus, at 12:48 e.h.  

  • @Linda - takk sömuleiðis. Sjáumst fljótlega skvís"

    @Anna Dögg - hehe ég er sko líka í skýjunum og ég get lofað þér að Böddi fengi áfall. ÉG var einmitt búin að sjá myndina af Sunnu. Gaman að hún sé komin með eina skvísu líka.

    @Thelma - Gleðilegt ár. Hafðu það sömuleiðis ofsa ofsa gott ;)

    @Halla - æi sauðarnir við tvær. Er þetta ekki samt líkt okkur? ;) Gleðilega hátíð Halla mín og SJÁUMST :)

    By Blogger Hugrún Sif, at 2:58 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home