Get Your Own! | View Slideshow

Hugrún & Nonni

sunnudagur, febrúar 11, 2007

Að fara eða vera ...

Dáldið skondin aðstaða núna. Klukkan er 00:11 og ég sit heima uppí rúmi í fínu fötunum með hárið uppsett og allt tilheyrandi. Laumaðist nefnilega aðeins heim úr Félagsheimilinu því ég var ekki alveg að meika þorrablótið. Svo voðalega mikið af fólki eitthvað og vel flestir við skál og ég alveg aðframkomin af þreytu ....

Nú er stóra spurningin hvort maður eigi að freistast á koddann eða hætta þessari leti og koma sér aftur í fjörið? Æi maður er nú ekkert voðalega skemmtilegur þegar maður er svona þreyttur .....

Nóg að gera þessa helgina. Jonni að spila á tveimur blótum og ég í jarðaför. Við erum sko búin að taka ákvörðun um að morgundagurinn fari BARA í að vera með tærnar uppí loft. Sofa, sofa, sofa og sofa og svo kannski kveikja á DVD mynd og jafnvel sofna yfir henni. Svo ætlum við að reyna að komast í bústað bara tvö að dúlla okkur við fyrsta tækifæri ... hvenær sem sú helgi nú verður að við eigum bæði frí ... en það er bara svo algjört must að fara svona í algjöra hvíld öðru hvoru og safna kröftum.

Jæja ... ég læt mig hafa það að kíkja aðeins á stemmarann aftur. ÉG fer þá bara aftur heim :)
Aríós ....

4 Comments:

  • Gott hjá þér :D Þreytt eður ei!!! Hormónabull bíður annaðhvort upp á svefn eða NO svefn... ef þessi NO svefn er á sínu tímabili... skemmtu þér þá þangað til hann bakkar hehehe;)
    Allavega var þetta þannig hjá mér... stundum full af orku en þreytt... gat ekki sofið. Ég fór líka einu sinni af skemmtun til að fara heim að sofa híhíhí :) Mætti svo aftur eftir klukkutíma... til í stuðið hehehe :D Meir að seigja var fulla liðið hætt að fara í taugarnar á mér :D Knús... legg til að þú gerir bara eins og ég og Emilía ætlum að gera á morgun!!! Eiga fullkomin Sunnudag og kannski freista þess að fara bara ekkert úr náttfötunum ;)

    By Anonymous Nafnlaus, at 2:28 f.h.  

  • @Anna Dögg - tíhíhí, sit ennþá í náttbuxunum enda dreif mig aftur á stjá sem endaði reyndar með að ég fór ekki að sofa fyrr en að ganga sjö, en það er nú önnur saga!!

    By Blogger Hugrún Sif, at 1:43 e.h.  

  • Skagaströnd. Sikiley norðursins? Maður spyr sig...:)

    By Anonymous Nafnlaus, at 1:55 e.h.  

  • @Arnar - jæja segðu :)

    By Blogger Hugrún Sif, at 1:59 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home