Get Your Own! | View Slideshow

Hugrún & Nonni

mánudagur, mars 19, 2007

Ég gleymdi alltaf að deila með ykkur að .....

..... ég prófaði í fyrsta skipti að verða bensínlaus um daginn. Það var ekkert sérstaklega skemmtilegt, sérstaklega í ljósi þess að betri helmingurinn minn hafði reynt að segja mér að það borgaði sig að taka bensín áður en ég legði af stað - en nei hélt ég kæmist þetta nú - og svo varð ég strandaglópur út í sveit. En það bjargaði mér að ég var í símasambandi og átti alveg 20 kr. inneign. Hringi nú reyndar frítt í karlinn en verð að eiga 10 kr. til þess en ég allavega gat sent eitt sms og hringt í kauða sem mátti auðvitað keyra til konu sinnar með bensín...

Ég fór í fiskibollunámið til ömmu á föstudaginn og hún hjálpaði mér úr prjónavandræðunum. Hallbjörg naut þess að vera í sveitaloftinu og hjálpaði afa í fjárhúsunum og spjallaði við Tátu. Ótrúlegt hvað það er mikið sveitablóð í henni :)

Ég er þess vegna búin að:
a) Tilkynna manni mínum að matvinnsluvél sé í fjárlögum næsta mánaðar.
b) Prjóna eins og vitleysingur um helgina og fyrsta afurðin fyrir litla babyið alveg að verða klár :) Klára í kvöld eða á morgun.

Karlinn komst í hann krappann í gær. Veðurtepptur frameftir degi eftir spilamennsku á Suðurlandinu og var heppinn að fá ekki bíl framan á sig, stelpuskjátu sem missti stjórn á bílnum og rásaði á veginum uns hún lenti útaf. Sem betur fer ekki framan á mínum manni!! Ég var alveg að fara á límingunum að vita af honum á ferð í þessum andskota. En hann komst heill heim fyrir rest, það var fyrir öllu.

Smá tilfæringar í gangi á babysíðunum. Ætlum að hafa bara eina síðu því Hallbjörg er að verða svo stór og maður spyr sig alltaf hvað eigi að halda úti barnalandssíðu lengi fyrir börn. Sá fram á að setja inn sömu myndir á báðar síður seinna meir þannig að það er alveg eins gott að hafa bara eina sameiginlega.... og verða þá vonandi virkari fyrir vikið :)

--- ANNARS ---
HEYRUMST

12 Comments:

  • Væri ég þú fengi ég mér gullgerðarvél í stað matvinnsluvélar :)

    By Anonymous Nafnlaus, at 11:18 f.h.  

  • @Arnar - hvað segirðu, hvar getur maður keypt svona gullgerðarvél á góðum prís ;)

    By Blogger Hugrún Sif, at 5:08 e.h.  

  • Segi þér það ef þú gefur mér fiskibollur í næstu heimsókn :)

    By Anonymous Nafnlaus, at 5:36 e.h.  

  • @Arnar - EKKI MÁLIÐ, hjemmelavet úr nýju matreiðsluvélinni ;) Komdu þér þá Norður í land!!!! ;)

    By Blogger Hugrún Sif, at 6:36 e.h.  

  • Sæl skvís
    Ég hefði vilja vera fluga í bílnum þínum þegar þú varst bensínlaus, þú ert alveg ótrúleg :). Það var gaman að hitta ykkur bumbukrílið um daginn en vonandi hittumst við nú sem fyrst við aðrar aðstæður. Verðið þið ekki örugglega heima um páskana?
    Kveðja frá Vatninu

    By Anonymous Nafnlaus, at 7:24 e.h.  

  • @Sigrún - halló sæta mín :) Já takk fyrir síðast, maður sá þig bara allt of lítið því sumur laumuðust uppá hótelherbergi að sturta í sig ... humm ha .... Júbb við verðum heima um páskana. Ég er í brjálaðri kirkjudagskrá :-D SJÁUMST ÞÁ!!!!!!!

    By Blogger Hugrún Sif, at 7:32 e.h.  

  • Velkomin í hóp þeirra bensínlausu.....Lenti einu sinni í þessu þegar ég var ad fara úr sveitinni og á Skagstönd....en ég komst ekki lengra en rétt ádur en eg kom ad Öxl. Þadan þurfti ég ad labba med Audunn á öxlinni í grenjandi rigningu, en þad kom trukkadriver og tók okkur upp í loka spölinn....hved med allt fólkid sem keyrdi fram hjá okkur, skyldi þad hafa haldid ad ég væri vara ad vidra okkur og ákedid ad skilja bílinn eftir í brekku... Nú þarftu ad fara ad koma á nr. 1 og sýna prjónamyndaskapinn :)

    By Anonymous Nafnlaus, at 10:30 e.h.  

  • bara ad segja hæ...
    hlakka til ad sja ykkur oll :)

    By Anonymous Nafnlaus, at 10:34 e.h.  

  • @Vigga - díses, ég var nú sem betur fer ekki svona óheppin. Sat á mínum rassi bara þangað til Jonni kom og bjargaði mér :) En já ég var svo mikið að spá í að kíkja á þig í kvöld en drattaðist aldrei af stað. Kíki fljótlega með prjónana því ég þarf aðeins að rifja upp hvernig ég felli af. ´

    @Svanhildur - hæ hó. Hlökkum líka til að sjá þig snúlla mín :)

    By Blogger Hugrún Sif, at 11:34 e.h.  

  • Hæ hugrún mín og takk fyrir kvittið, Innilega til hamingju með verðandi afkvæmið og vona að fiskibolluframleiðslan á skagaströnd gangi vel, hehe. Finnst reyndar gullgerðarhugmyndin ekki svo vitlaus heldur, en kannski að hægt sé að gera bara bæði.
    Best of luck með allt,
    Kv Bobby

    By Anonymous Nafnlaus, at 7:39 f.h.  

  • @Bobbý - takk kærlega fyrir það. Ég var svo himinlifandi glöð að sjá þessa drauma þína vera á svona fullur spýtti í framkvæmd!!!! :-D Hafði ekki grænan grun um að þú værir byrjaður á þessu svona á fullu, vissi síðast af þér í Noregi. En svona líður nú tíminn og hlutirnir breytast án þess að maður hafi hugmynd um!!! :) En já ég varð bara á Skagaströndinni og já eigum við ekki bara að segja að ég fari að mala gull á fiskibolluframleiðslunni ... Þá er þetta tvennt sameinað ;)

    By Blogger Hugrún Sif, at 3:48 e.h.  

  • Thiѕ sіte was... how do ӏ say it?
    Relеvant!! Finally I've found something that helped me. Many thanks!

    Also visit my web site :: payday

    By Anonymous Nafnlaus, at 1:14 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home